20.8.2008 | 16:41
Boratbrókin = heit lumma
Þetta eru auðvitað svo sérlega klæðilegar brækur svo maður getur svo sem skilið það að þær seljist eins og heitar lummur... Kannski spurning um að íslensku júdókapparnir fari að skipta út gömlu búningunum?
Breskur afreksmaður á brókinni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.8.2008 | 11:45
Tímaþjófurinn
Facebook.com aldrei vinsælli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.8.2008 | 15:31
Hjónaherbergis-salerni eða hjónasalernisherbergi?
Sá þessa mynd fyrir nokkru á fasteignavef mbl.is og datt í hug að deila henni með ykkur En smart hönnun, ha? Ekkert eins notalegt þegar maður situr á dollunni á morgnanna að geta blikkað elskuna sína í rúminu í leiðinni
Svo ég tali ekki um ef maður þarf að stökkva fram úr rúminu til að æla með rassinn klesstan við glerið, hehe.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
4.8.2008 | 13:53
Heppin að vera fríð...
Mikið er hún Angie heppin að vera svona andlitsfríð - með þessar varir Það hefði ekki komið eins vel út ef hún hefði verið ófríð geyið. Þá hefði hún mögulega getað reddað sér giggi í Disneyworld sem kærasta Andrésar andar og myndi ekki einu sinni þekkja Brad Pitt og þá ætti Jen elskuna sína í friði fyrir BIGlips Ekki það að ég sé obsessed sko. Ég hélt bara alltaf með henni Jennifer Ég tek undir með Robin Williams sem sagði einu sinni um Angelinu að hann langaði helst að bleyta þessar varir og festa hana við e-ð
Tvíburar frumsýndir" á netinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.7.2008 | 14:57
"Þegiði, það er verið að reyna að horfa hérna!"
Á ekki að flykkjast í bíó svo maður geti nú tekið undir með gömlu ABBA slögurunum?
Ég ætti ekki annað eftir Ef mig grípur óviðjafnanleg löngun til að syngja þegar ég er í bíó þá kemst ég alveg yfir það án þess að æra nærstadda með góli mínu Get vel setið á mér þar til heim er komið. Þar get ég spangólað að vild - strákarnir hlaupa þá bara út Ef ég væri á svona Singalong sýningu er ég ekki viss um að ég gæti notið þess að horfa ef fólkið í kringum mig væri hvert af öðru að sleppa sér og syngjandi hástöfum, hver með sínu nefi
"Youu are the dancing queeeen, feel the beat from the tamboriiiiiiine, óóójjjeeeeee"
Ábreiður af Abba-klassík á toppinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.7.2008 | 11:35
Costa Del Reykjavík
Mikið lifandis skelfing var dagurinn í gær frábær Fleiri svona ha? Fórum í Indíánagil þar sem var svo heitt að ég dauðöfundaði þær sem höfðu haft vit á því að vera í bikini innan undir, strákarnir vaðandi út í ána og sitjandi undir fossunum. Yndislegt. Munaði engu að einn laxinn synti á þá Varð alla vega uppi fótur og fit við ána þegar fólk kom auga á einn vænan að hafa það notalegt í hylnum þar sem við sátum rétt við á teppi og höfðum það líka notalegt Krakkarnir gerðu sig líklega til að elta vininn uppi en þarf víst varla að taka fram að það var óþarfa bjartsýni
Ég hef víst ekkert val um hvaða útlit ég hef á síðunni minni, alla vega get ég ekki haft mitt upprunalega
Nú styttist í mestu ferðahelgi ársins og við ætlum að halda okkur heima í félagsskap góðra vina Er svo fegin að þurfa ekki að vera með áhyggjur af únglíngnum heldur. Það er kannski líka af því dregið hefur úr útihátíðarbransanum sem betur fer.
En þið hin, gangið hægt um gleðinnar dyr og keyrið varlega
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.7.2008 | 16:00
Heiðardal(sel)urinn
Þá er maður kominn heim í kuldann og vosbúðina En alltaf gott að koma heim samt. Auðvitað bónus að Yvonne vinkona er á landinu, það er alla vega ekki verra
Á meðan við vorum úti barst tilkynning frá Reykjavíkurborg um að blokkin okkar fengi viðurkenningu frá borginni fyrir viðhald og snyrtimennsku Nema hvað? Ég hélt þeir ætluðu aldrei að fatta þetta
Hvað er þetta með auglýsingar í júlí um að nú sé rétti tíminn til að kaupa skólatöskur? Ég vil fá að vera í friði í sumarfríinu mínu með hugleiðingar um haustið og því sem fylgir Þetta er bara sumarfrísáreitni Maður er bara djollíkóla í sumarfríi og svo er því bara sisona slengt framan í mann að það styttist nú í að skólarnir byrji. EN ÞAÐ ER ENNÞÁ JÚLÍ OG ÉG ER Í SUMARFRÍI! Látið mig í friði með svona auglýsingar og leyfið mér að halda það í friði að það sé ekki bara rétt tæpur mánuður þar til fjörið byrjar
Nú er mín búin að fá sér Tarot spil þannig að áhugasamir um lestur eru hvattir til að hafa samband Ég ábyrgist þó ekki útkomuna því ég kann ekkert á þetta whatsoever En gaman að pæla í þessu...
Ég vildi að ég væri eins og Helga vinkona að tala hér um það hvað ég er dugleg að hlaupa. Ég er nefnilega ekki dugleg að hreyfa mig punktur en voða dugleg að tala um það hvað ég vildi vera dugleg Verð bara að fara að gera e-ð í þessu greinilega svo ég geti farið að státa mig af dugnaðinum og kannski misst e-ð af kílóum í leiðinni Helga mín, passaðu þig bara. Fyrr en varði verð ég farin að mása ofan í hálsmálið á þér á hlaupunum
Erla tengda-amma á afmæli í dag 82 ára, geri aðrir betur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.7.2008 | 11:14
Sól sól skín á mig
Vedurstofan á Spáni spáir sól og meiri sól Sunnanátt og 30+ st hiti og thurrt bjartvidri um allt land Hér er talsverdur vindur í dag sem okkur finnst voda notalegt. Trúum ekki ad lidin sé vika sídan vid komum hingad, vid vaerum engan veginn tilbúin til ad fara heim eftir viku. Vid Andri skruppum til Afríku á mánudaginn og var tad lífsreynsla sem hvorugt okkar gleymir seint. Tetta var eins og ad stíga inn í adra veröld med magadansmeyjum og fólki ad flytja byrdar á asnakerrum.
Í dag er stefnan tekin á Mijas sem er thorp í fjöllunum hér fyrir ofan. Fram ad thví er og verdur legid vid sundlaugarbakkann med Sangria í annarri
Lifid heil
Fremur þungbúið á landinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.6.2008 | 20:03
Viva España :)
Svei mér thá ef thad er ekki heitari sólin á Costa Del Sol en í Torrevieja og Benidorm Alla vega dugar ekki sólarvörn 30 hér sem dugdi okkur vel fyrstu dagana í hittedfyrra. Thetta er frábaer stadur og frábaert hótel. Hér er skemmtidagskrá allan daginn og til midnaettis, baedi fyrir börn og fullordna. Thrír veitingastadir, líkamsraektarsalur og Gud má vita hvad. Hér er öryggisgaeslan í fyrirrúmi en hópur vopnadra lögregluthjóna er á vappi hér allan daginn Ástaeduna thekkjum vid ekki enn en eigum eftir ad impra eftir henni vid fyrsta taekifaeri Vid hlid hótelsins er stórt moll sem vid höfum heimsótt til ad kaupa okkur e-d í svanginn og thar má finna allar helstu verslanirnar nema H&M Kíkjum í H&M thegar vid fáum okkur bílaleigubíl og skreppum til Marbella á ríka og fraega fólkid Á leidinni thangad er víst e-d annad moll sem inniheldur thá brádnaudsynlegu verslun...
Á morgun förum vid Andri til Afríku, nánar tiltekid til Marokkó og erum mjög spennt fyrir thví Ástaedan fyrir thví ad vid förum bara tvö er annars vegar sú ad Raggi verdur sjóveikur á hjólabát hvad thá heldur meir og farid verdur í ferju yfir og hins vegar höldum vid ad ekki sé snidugt ad fara med börn, svona midad vid lysingar. En vid Andri erum mjög spennt.
Medan ég skrifa thessa faerslu stendur yfir úrslitaleikurinn í Evrópukeppninni, í augnablikinu er hálfleikur og vel flestir gestir hótelsins staddir hér á einum veitingastadnum til ad horfa, mikil stemning mikid gaman. Their sem mig thekkja thurfa ekki ad vera undrandi yfir thví ad ég skuli geta setid í tölvunni medan á spennunni stendur. Hér á Costa Del Sol er spennan ad gera út af vid innfaedda jafnt sem túrista og their sem ekki eru klaeddir landslidstreyjunni eru einfaldlega klaeddir spaenska fánanum eda med fánalitina framan í sér. Í baenum er bílflaut og söngur yfirgnaefandi og their hafa ekki einu sinni unnid ennthá
Jaeja, best ad fara og kíkja á leikinn, svona sýna adeins lit Bid ad heilsa ykkur essgurnar, hafid thad gott á klakanum
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.6.2008 | 18:08
Costa Del Sol
Þá líður að því að fjölskyldan taki flugið suður á bóginn til Costa Del Sol nánar tiltekið til bæjar sem heitir Fuengirola. Er alveg farin að sjá þetta í hillingum, hitinn, sundlaugin, afslöppunin, ströndin, kokkteilarnir, pöddurnar - nei segi sona. Hef ákveðið að taka stefnuna á líkamsræktarsal hótelsins, hvað svo sem verður Svo er mér sagt að við hlið hótelsins sé risastórt moll hmmmmm. Og ekki langt frá er NIKE factory.... Höfuðáherslan verður nú samt á afslöppun og að njóta með fjölskyldunni sinni.
Svo nú er bara að lista niður hvað á eftir að gera fyrir ferð, hverju á að pakka osona. Eins þarf að klára to do listann í vinnunni, þrír dagar eftir þar
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
336 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar