Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2009
16.2.2009 | 17:28
K-B-ónus
Látið orðið berast. Fyrstu þrír dagar vikunnar eru einu dagarnir sem maður á að láta sjá sig með veskið í verslunum Bónuss og Krónunnar en þar hækkar vöruverð hina dagana Og þar hafið þið það. Versla í matinn á mánudegi, þriðjudegi eða miðvikudegi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
12.2.2009 | 18:18
Öskudagur til mæðu
Það er komið að því. Næsti Öskudagur nálgast óðfluga. Dagurinn sem ég kvíði yfirleitt. Af hverju? Jú, ég er útivinnandi og hef ekki tök á því að þeysast á milli fyrirtækja með börnin mín grímuklædd í aftursætinu svo þau geti sníkt sælgæti í fyrirtækjum. Mér finnst það reyndar alveg glataður nýr siður en hverju tekur maður nú ekki þátt í með ormunum sínum? (Hef reyndar aldrei gert það, þeir hafa alltaf verið í Frístundaheimilinu þennan dag )
Málið er, að í þeirra skóla er alltaf starfsdagur á Öskudag. Foreldrafélagið hefur séð um hátíð sem fram fer í íþróttasal skólans og byrjar hún yfirleitt í kringum kl 14 og stendur í tvo tíma ca. Þannig að fram að því eru strákarnir mínir einir heima þar sem báðir eru hættir í Frístundaheimilinu, grímuklæddir að bíða eftir því að hátíðin hefjist af því mamma gamla er í vinnunni, grímuklædd með hinum börnunum sínum að slá köttinn úr tunnunni og kemst því ekki til að skutlast í nammisníkjuferðirnar
Í ofanálag á miðsonurinn afmæli þennan dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
242 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Af mbl.is
Erlent
- Versta vínuppskera í 62 ár
- Ungur drengur stunginn á leið í skólann
- 76 milljarðar í enduruppbyggingu í Dúbaí
- Ógildir dóm yfir Weinstein
- Trump hafður að háði í ræðu Bidens
- Réðust á ráðstefnugesti í Stokkhólmi
- Spaðar Rauðu myllunnar féllu til jarðar
- Samþykktu nýja löggjöf til að verja konur
- Trump með forskot í sex af sjö lykilríkjum
- Handtekin fyrir að stinga kennara og nemanda