31.7.2008 | 11:35
Costa Del Reykjavík
Mikið lifandis skelfing var dagurinn í gær frábær Fleiri svona ha? Fórum í Indíánagil þar sem var svo heitt að ég dauðöfundaði þær sem höfðu haft vit á því að vera í bikini innan undir, strákarnir vaðandi út í ána og sitjandi undir fossunum. Yndislegt. Munaði engu að einn laxinn synti á þá Varð alla vega uppi fótur og fit við ána þegar fólk kom auga á einn vænan að hafa það notalegt í hylnum þar sem við sátum rétt við á teppi og höfðum það líka notalegt Krakkarnir gerðu sig líklega til að elta vininn uppi en þarf víst varla að taka fram að það var óþarfa bjartsýni
Ég hef víst ekkert val um hvaða útlit ég hef á síðunni minni, alla vega get ég ekki haft mitt upprunalega
Nú styttist í mestu ferðahelgi ársins og við ætlum að halda okkur heima í félagsskap góðra vina Er svo fegin að þurfa ekki að vera með áhyggjur af únglíngnum heldur. Það er kannski líka af því dregið hefur úr útihátíðarbransanum sem betur fer.
En þið hin, gangið hægt um gleðinnar dyr og keyrið varlega
328 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.