Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2008
28.8.2008 | 19:27
Vanagangurinn...
Hrund! Þarna gómaði ég þig! Kallaði tannlæknirinn minn til mín þar sem hún "gómaði" mig að vera að skoða nammiúrvalið í Bónus Engar skammir samt, það var ekki að ástæðulausu að hún var sjálf stödd í nammideildinni...
Hver annar en yours truly myndi týna símanum sínum í Bónus? Var komin út úr búðinni þegar ég uppgötvaði mér til óþæginda að síminn hvar hvorfinn. Fór inn aftur með samþykki starfsmanns þar sem búið var að loka sjoppunni Fann hann í frystinum hjá súpukjötinu, vel kældan.
Er annars byrjuð að vinna aftur og er enn að komast í gang. Orkan búin í lok dags. Þannig að ég nota það auðvitað sem afsökun fyrir svona hlutum Þar til ég get það ekki lengur, þá þarf ég að finna upp á nýrri
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.8.2008 | 16:41
Boratbrókin = heit lumma
Þetta eru auðvitað svo sérlega klæðilegar brækur svo maður getur svo sem skilið það að þær seljist eins og heitar lummur... Kannski spurning um að íslensku júdókapparnir fari að skipta út gömlu búningunum?
Breskur afreksmaður á brókinni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.8.2008 | 11:45
Tímaþjófurinn
Facebook.com aldrei vinsælli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.8.2008 | 15:31
Hjónaherbergis-salerni eða hjónasalernisherbergi?
Sá þessa mynd fyrir nokkru á fasteignavef mbl.is og datt í hug að deila henni með ykkur En smart hönnun, ha? Ekkert eins notalegt þegar maður situr á dollunni á morgnanna að geta blikkað elskuna sína í rúminu í leiðinni
Svo ég tali ekki um ef maður þarf að stökkva fram úr rúminu til að æla með rassinn klesstan við glerið, hehe.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
4.8.2008 | 13:53
Heppin að vera fríð...
Mikið er hún Angie heppin að vera svona andlitsfríð - með þessar varir Það hefði ekki komið eins vel út ef hún hefði verið ófríð geyið. Þá hefði hún mögulega getað reddað sér giggi í Disneyworld sem kærasta Andrésar andar og myndi ekki einu sinni þekkja Brad Pitt og þá ætti Jen elskuna sína í friði fyrir BIGlips Ekki það að ég sé obsessed sko. Ég hélt bara alltaf með henni Jennifer Ég tek undir með Robin Williams sem sagði einu sinni um Angelinu að hann langaði helst að bleyta þessar varir og festa hana við e-ð
Tvíburar frumsýndir" á netinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
336 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar