9.3.2009 | 15:29
Ástu upp!
Mér finnst svo sjálfsagt og eðlilegt að hún Ásta Ragnheiður lendi ofarlega á lista. Að mínu mati er 3. sætið algjört lágmark. Hún er ein af fáum stjórnmálamönnum sem hefur langan afrekalista að mínu mati. Ef við berum saman Ástu, Helga Hjörvar, Skúla Helgason, Össur og Steinunni Valdísi þá er þetta nú borðleggjandi, ha? Ég þekki reyndar ekkert til Skúla Helgasonar en hin eiga bara ekki erindi samanborið við Ástu.
Ég ætla alla vega að leggja mitt af mörkum til að Ásta lendi ofar en þau hin þannig að hún geti haldið áfram að gera góða hluti í þágu okkar hinna. Nú er ég engin sérstök Samfylkingarmanneskja en mér finnst Ásta virkilega leggja sig fram í sínu starfi og það verður til þess að ég vil endilega að hún fái tækifæri til að halda því áfram. Ég get aftur á móti ekki sagt um þau hin að þau leggi sig virkilega fram í sínu starfi. Þá er ég ekki að segja að þau vinni sín störf ekki vel, ég hef bara ekki séð það til þeirra
Áfram Ásta Ragnheiður
Ásta sækist eftir 3. sætinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
32 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Af mbl.is
Viðskipti
- Adani ákærður fyrir mútur og svik
- Félagsbústaðir tapa án matsbreytinga
- Dana tekur yfir markaðsmál Lauf Cycles
- Kerecis-hjón fjárfesta í leiguflugi
- Vextir lækki um 175-200 punkta
- Dr. Bjarni Pálsson til Vinds og jarðvarma
- Icelandair færir eldsneytið til Vitol
- Arkitektar ósáttir við orðalag forstjóra FSRE
- Ný ríkisstjórn þurfi að hafa hraðar hendur
- Indó lækkar vexti
Athugasemdir
Góð Hrund
En þarf maður ekki að vera meðlimur hjá Samfylkingunni til að fá að kjósa í prófkjörinu??? Hvaða flokk/fólk ert þú að styðja? (og ég spyr bara af forvitni) ;-)
Lilja G. Bolladóttir, 11.3.2009 kl. 04:16
Jú, ég gerði það fyrir nokkrum árum síðan að skrá mig í Samfylkinguna til að geta tekið þátt í prófkjörinu. Ég styð engan einn flokk og er afskaplega fylgjandi því að kjósendur fái tækifæri til að gefa fólki atkvæði sín en ekki flokkum. Það sem allir flokkar eiga eðlilega sameiginlegt er að efsta fólk á listum er misjafnt. Þess vegna ætla ég t.a.m. að gera mitt til að Ásta komist ofar en þau hin af því mér finnst hún hafa í gegnum tíðina lagt sig virkilega fram í sínu starfi og ætti svo sannarlega að fá tækifæri til að halda því áfram.
Det er nu det
Hrund Traustadóttir, 11.3.2009 kl. 15:49
Ásta er ein af þeim sem ég myndi vilja sjá fá tíma til að koma sínum málum í gegn. Sínum málum er auðvitað ekki rétt, okkar málum er réttara þar sem hún vinnur 100% fyrir okkur! Jafnvel að málum sem okkur hefði barasta ekki dottið til hugar að athuga;)
kv.D
Kristín Bjarnadóttir, 12.3.2009 kl. 00:19
Ég þekki ekki nógu vel til starfa Ástu til að tjá mig um þetta mál en hef reyndar aldrei verið sérstaklega hrifin af henni..... Af hinum sem þú nefnir, þá finnst mér bara Helgi Hjörvar vera málefnalegur og góður stjórnmálamaður.
Nú eru prófkjörin búin og ég furða mig á lélegri þátttöku landsmanna. Stórfurðulegt á meðan fólk er að heimta breytingar, þá nennir það ekki að mæta og taka þátt ....
Lilja G. Bolladóttir, 16.3.2009 kl. 20:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.