Leita í fréttum mbl.is

Nú er ég reið!

Hvað á ég að gera við þessa reiði sem hvolfist yfir mig núna þegar ég heyri af spillingunni sem grasserar í kerfinu? Það er búið að setja okkur á hausinn sem er nógu slæmt en að fá svo fréttir eins og þessar í gær er eins og hellt hafi verið bensíni á eld. Er hægt að gefa meiri skít í þjóðina sína? Jájá, fellum bara niður þessar skuldir drengir mínir, við deilum þeim bara niður á fólkið í landinu AngryBannsettir siðleysingjar Angry

Hvert eigum við svo að beina þessari reiði? Að bankamönnum? Já auðvitað, en ekki síður að þeim sem leyfðu bankamönnum að vinna "vinnuna" sína óáreittum. Ríkisstjórnin, stjórn Seðlabankans og þeir hjá Fjármálaeftirlitinu eiga auðvitað ekki að fá að halda sinni vinnu lengur. Ég hef ekki hugmynd um hver væri endilega hæfari til að taka við þessum störfum, en þetta fólk er búið að klúðra öllu fyrir okkur og á þar af leiðandi að taka afleiðingunum, ekki síður en við. Svo kvartar Menntamálaráðherra yfir því í fjölmiðlum að henni finnist óþolandi að sitja undir svona tortryggni þegar verið er að spyrja hana hvort maðurinn hennar hafi verið einn af þeim sem fengu sínar skuldir niðurfelldarShocking Við hverju býst hún? Að af því hún sé ráðherra þá sé hún/þau stikkfrí? Er óeðlilegt að fólk sé tortryggið eins og staðan er?

Svo segja þessir menn: Við skulum nú ekkert vera að leita að sökudólgum!! Shocking Það er búið að setja allt á annan endann í þessu landi, þúsundir búnir að missa vinnuna eða eiga eftir að missa hana, fólk skuldsett upp í topp, gjaldþrota og ég veit ekki hvað - og við eigum EKKI að leita að sökudólgum?! Hver segir svona nema sökudólgurinn sjálfur? Ég er brjáluð og ég vona innilega að við íslendingar stöndum nú saman í því að gera eitthvað í málunum en sitjum ekki bara heima og klórum okkur í kollinum. Það þarf að rannsaka þessa rotnun í bönkunum og ég vona að fjölmiðlar helli sér í það. Ég treysti alla vega engum öðrum í það eins og staðan er í dagAngry

Og hananú.


mbl.is Óþolandi að líða fyrir tortryggni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hrund mín vertu bara róleg nei ekki kenna neinum um. Eyddu bara smá tíma í börnin þín og hugsaðu um þína nánustu njótið þess að vera saman og vertu glöð ha ?   Andsk.... hálfvitar.  Já ég er hrædd um að einhver í þessu þjóðfélagi eigi eftir að snappa eins og vinkona mín orðaði það, það vantar blóðið. Sem maður auðvitað vonar að ekki verði þetta ljótara en það er en afleiðingarnar eru ekki bara peningar sem hafa horfið þetta hefur áhrif á fólkið líka Blíðustu gleðigjafar eins og þú orðnir fokreiðir hvað þá með skaphundana og þá sem ganga ekki á öllum?  Maður er bara að verða hræddur.... láttu svo sem þú sjáir ekki þessa athugasemd, því ráðamenn þjóðarinnar hafa sent mér þau skilaboð að bera ekki út nein leiðindi, dont worry be happy

Ásta (IP-tala skráð) 4.11.2008 kl. 22:13

2 identicon

heyr heyr

Didda (IP-tala skráð) 4.11.2008 kl. 23:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

238 dagar til jóla

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband