21.6.2008 | 18:08
Costa Del Sol
Þá líður að því að fjölskyldan taki flugið suður á bóginn til Costa Del Sol nánar tiltekið til bæjar sem heitir Fuengirola. Er alveg farin að sjá þetta í hillingum, hitinn, sundlaugin, afslöppunin, ströndin, kokkteilarnir, pöddurnar - nei segi sona. Hef ákveðið að taka stefnuna á líkamsræktarsal hótelsins, hvað svo sem verður Svo er mér sagt að við hlið hótelsins sé risastórt moll hmmmmm. Og ekki langt frá er NIKE factory.... Höfuðáherslan verður nú samt á afslöppun og að njóta með fjölskyldunni sinni.
Svo nú er bara að lista niður hvað á eftir að gera fyrir ferð, hverju á að pakka osona. Eins þarf að klára to do listann í vinnunni, þrír dagar eftir þar
33 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hæ, hæ !
Gaman að lesa bloggið þitt, hitti Ragga um daginn og hann sagði mér frá því að þú værir farin að blogga, svo ég mátti til með að líta við hjá þér á bloggsíðuna þína
Langar að óska ykkur fjölskyldunni góðrar ferðar í sólina og sæluna, hafið það sem allra best.
Kær kveðja frá Hrund og Sigga.
Hrund (IP-tala skráð) 21.6.2008 kl. 20:01
Hæhæ,
gaman að heyra frá þér mín kæra Takk fyrir, við komum örugglega til með að hafa það gott
Hrund Traustadóttir, 21.6.2008 kl. 20:29
Hæ Hæ
Var að koma frá Costa del Sol á mánudag vorum á Benalmadena Costa fínn staður hafið það sem allra best og njótið þess að vera í fríi.
Kveðja
Hlía
Hlía (IP-tala skráð) 23.6.2008 kl. 11:33
Já já ég get svo sem alveg óskað ykkur góðrar ferðar - mig langar sko ekkert að fara til útlanda þegar allt er svona dýrt og þannig þú veist Nei ein bara þræl öfundsjúk !!! Góða ferð elskurnar og hafið það gott - ég fæ að hringja ef tryppið mitt skyldi nú lenda í vanda................ sem við vonum bara að komi ekki til - have fun
Helga Sigríður Úlfarsdóttir, 23.6.2008 kl. 22:08
Gleði gleði gleði enda evran komin niður fyrir 130 kr þannig að þið getið hætt við að smyrja nesti til að hafa með í ferðina. Ef ég ætti að velja e-ð ísl til að taka með mér erlendis þá verð ég að segja vatnið. En það getur verið erfitt að taka nægilegt magn til tveggja vikna eða jafnvel lengri tíma. Hlakka til þegar maður verður farin að geta keypt vatnið okkar í Evrópu líkt og í USA.
Hafið það sem allra allra best, kostar ekkert að slappa af og liggja í sól.
Kveðja Helena og co.
Helena (IP-tala skráð) 25.6.2008 kl. 11:08
Hæ hæ þetta minnir mann nú á sögurnar um það þegar símsvararnir komu á markaðinn og fólk setti inn að það væri í fríi næstu x vikurnar...........Mjög skynsamlegt að setja inn á ólæsta síðu á veraldarvefnum að íbúðin sé mannlaus næstu vikurnar:)
aðfinnslusemin spratt að sjálfsögðu af öfundsýki...........
Góða ferð og góða skemmtun, vildi að við gætum verið með ykkur.
Didda (IP-tala skráð) 25.6.2008 kl. 22:05
Hehe, en það kemur hvergi fram að íbúðin eigi að vera mannlaus næstu vikurnar
Það gæti t.d. allt eins verið að Yvonne og Siggi yrðu í henni... Svo ég tali ekki um nágrannavaktina
Takk fyrir umhyggjusemina, vildi að þið gætuð verið með okkur
Hrund Traustadóttir, 25.6.2008 kl. 22:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.