Bloggfærslur mánaðarins, október 2008
28.10.2008 | 13:24
My Darling Brown Vetrarfrí og Veikindi
Ég var að skoða síðuna www.indefence.is um daginn og þegar við strákarnir vorum úti að búa til snjókalla í vetrarfríinu datt mér í hug að stökkva inn og sækja myndavélina og smella inn á síðuna mynd af þeim með skilaboðum til háttvirtra forsætis- og fjármálaráðherra Bretlands. Þegar ég er að smella af eru drengirnir að spyrja mig hvað standi á blaðinu og af hverju ég sé að láta þá halda á þessu blaði. Ég svaraði því til að ég myndi útskýra það fyrir þeim þegar við kæmum inn. Þá segir Birkir: Mamma, ertu að nota okkur? Ehemm, neinei hvernig dettur þér það í hug drengur? hehe. Fékk svo skilaboð frá skólasystur minni á Facebook þar sem hún spyr mig hvort þetta sé ekki drengurinn minn á forsíðu sænska Aftonbladet? Og jú mikið rétt, það eru þeir bræður vel nýttir semsagt http://www.aftonbladet.se/nyheter/article3631893.ab
Var annars að horfa á viðtalið við Björgúlf í Kompás í gær og vááá hvað ráðamenn á Íslandi eru í stórri klípu ef upp kemst að Björgúlfur hafi rétt fyrir sér. Vonandi verða þeir þá rassskelltir opinberlega Ég hef það frá fyrstu hendi að þeir sem hafa setið fundi með Geira þessar síðustu vikur hafa komið af þeim fundum engu nær en áður en þeir fóru. Maðurinn er víst með ákvörðunarfælni á háu stigi og allir þessir fundir eru ekki að skila einu einasta neinu. Það er því kannski ekki að ástæðulausu sem þeir sem setið hafa fundina koma út úr ráðherrabústaðnum með pókerfés og engin komment til fjölmiðla. Þeir hafa ekki frá neinu að segja! Það verður fróðlegt að fylgjast með framvindu þessa máls og hvort Björgúlfi takist að sanna sitt mál. Hafi hann rétt fyrir sér, hef ég mikið meiri skilning á viðbrögðum breta þó svo að þau hafi reyndar verið fullhörð. Ég skil þau samt betur. Fyrir þá sem ekki sáu viðtalið má finna það hér: http://vefmidlar.visir.is/VefTV/?channelID=STOD2&programID=3a6059bd-b342-4012-8c77-6966f9a0abd2&mediaSourceID=a90869d7-3445-42f4-a5fd-5b8a6373f7da
Vetrarfríið góða hefur því miður farið í veikindi á þessu heimili. Sá yngsi veiktist á föstudag og lá alla helgina, og nú liggur miðjan voðalega lasinn og druslulegur Þannig að leikskólakennari heimilisins hefur ekki alveg verið að standa sína pligt í vinnunni undanfarið En ég prjóna þeim mun meira. Er búin með sitthvort ullarsokkaparið á yngri synina tvo og er á því þriðja sem unglingurinn fær Voða voða gaman
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.10.2008 | 18:44
Vetrarfrí svetrarfrí
Á morgun byrja grunnskólanemarnir á heimilinu í vetrarfríi og ég er ekkert svakalega hress með það Þetta vetrarfrí sem fólk er skikkað í fer nett í taugarnar á mér. Síðustu ár hafa hlutirnir bjargast hér þar unglingurinn hefur þá auðvitað verið í fríi líka en nú er hann orðinn framhaldsskólanemi og því ekki í vetrarfríi á sama tíma og grunnskólanemarnir. Við foreldrarnir eigum því engan annan kost en að skiptast á að taka okkur frí frá vinnu til að sinna ungunum því ekki skiljum við þá eina eftir í þrjá daga Þetta hljómar kannski eins og maður nenni ekki að sinna börnunum sínum en ég hef bara skyldum að gegna á mínum vinnustað og það fer í taugarnar á mér að ein stétt í landinu setur vetrarfrí í kjarasamningana sína og þá eiga allar aðrar stéttar sjálfkrafa að fylgja á eftir Þetta hentar bara hvorki mér né mínum vinnustað. Ef allir foreldrar tækju sér frí með börnunum sínum á þessum tíma myndi þjóðfélagið ekki bara nánast lamast? Ég hrópa ferfalt húrra fyrir þeim grunnskólum sem hafa ákveðið að sleppa vetrarfríi og lengja sumarið í staðinn
Fór í dansinn á mánudaginn. Held að kennarinn þar sé stórlega að ofmeta getu okkar í dansi. Búnar með fjóra tíma og tvo dansa... Þ.e.a.s. í þessum fjórum tímum hefur hún reynt að kenna okkur tvo dansa. Ég hefði kallað gott að ná góðum tökum á einum dansi í átta tímum
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
5.10.2008 | 19:44
Bara siðlausir
Leikskólamorðleikur tekinn úr umferð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
336 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar