Leita í fréttum mbl.is

Kurt Nilsen og co

Verð að deila einu með ykkur. Raggi fékk geisladisk í afmælisgjöf frá systur minni og hennar manni. Hvorki meira né minna en sér-innfluttur fyrir Ragga Wink Þetta mun vera diskur sem ekki fæst hér á landi en með tónlist sem við hjónin höfum fengið að njóta heima hjá fyrrnefndri systur minni Smile Á diskinum syngja saman á tónleikum fjórir norskir gaurar og þeirra á meðal fyrir þá sem til þekkja er Kurt Nilsen (með frekjuskarðið), sá er vann alheims-Idolkeppnina um árið. Nema hvað, að við erum búin að brenna tvö eintök, eitt í hvorn bíl þannig að þá er orginalinn klár í græjunum heima og þannig getum við gólað okkur hás í bílunum báðum. Ef ég væri á góðærisbankastjóralaunum fengi ég ekki Elton John til að koma og spila í afmælinu mínu. Ég fengi þessa fínu norðmenn. Og hananú.

Ég fann eitt gott tóndæmi á youtube og ákvað sem sagt að deila því með ykkur:

http://www.youtube.com/watch?v=MPl01GRU2Zw

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vá hvað þetta er flott!

Fyllir mann skelfilegum vanmætti að taka eftir að þetta geta þeir samankrepptir í stólunum og gefur lítið fyrir það sem ég lærði í framburði á síðustu önn, líkamsstaða skiptir sem sagt máli fyrir þá sem hafa venjulega rödd en svona snillingar æla þessu út úr sér bognir í baki með klesst lungu og hangandi haus.

Takk fyrir mig.

Didda pidda (IP-tala skráð) 13.1.2009 kl. 11:22

2 identicon

Talaði við Kurt áðan og þar sem hann er frændi minn tekur hann ekkert fyrir að koma í afmælið þitt, hvenær á hann að mæta?

Didda (IP-tala skráð) 13.1.2009 kl. 11:24

3 Smámynd: Hrund Traustadóttir

Æ takk Didda, alltaf hægt að stóla á þig

Nákvæmlega það sama og ég tók eftir, samankrepptir í stólunum að syngja eins og ekkert sé... Segir örugglega margt um muninn á þeirra getu versus okkar

Hrund Traustadóttir, 13.1.2009 kl. 16:38

4 Smámynd: Helga Sigríður Úlfarsdóttir

geðveikir - hvernig var með mitt eintak

Helga Sigríður Úlfarsdóttir, 13.1.2009 kl. 22:46

5 Smámynd: Hrund Traustadóttir

Þú færð það þegar þú ferð með mér í Smáralind að kaupa skó

Hrund Traustadóttir, 13.1.2009 kl. 23:03

6 identicon

Vaaá bilaðislega flottir gaurar uh raddlega séð. Er ekki frá því að þeir slái Ormson eða Lumex (eða hvað þeir hétu þarna íslenska boybandið) út. Hækkaðu aðeins meira í græjunum heima hjá þér ja eða í bílnum og þá heyrist þetta kannski yfir til mín. Er enn með gæsahúðina (sit reyndar við opinn glugga) en nú ætla ég að setja þetta aftur á fóninn (hvað sem það nú er) til að tryggja að gæsahúðin fari ekki.

Luv Helena

Helena (IP-tala skráð) 14.1.2009 kl. 14:49

7 identicon

Já flottir! Og mikið var nú vinalegt að sjá nafnið þitt á heilsíðu auglýsingu fyrir Sólskinsdrenginn í dag:) Knúz

Ásta (IP-tala skráð) 14.1.2009 kl. 17:10

8 Smámynd: Helga Sigríður Úlfarsdóttir

Gellan - bara orðin heimsfræg á Íslandi í dag  Má maður snerta????

Veit, veit, ég er bara afbrýðisöm - myndi samt varla höndla slíka frægð - enda feimin og hlédræg með eindæmum...............

Helga Sigríður Úlfarsdóttir, 14.1.2009 kl. 20:02

9 Smámynd: Helga Sigríður Úlfarsdóttir

bíddu já skóleiðangur - ekki málið - any time my dear - (svolítið lengi að fara í gang fattarinn)

Helga Sigríður Úlfarsdóttir, 14.1.2009 kl. 20:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

250 dagar til jóla

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 16975

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband