Leita í fréttum mbl.is

Hlaup og Múffur... Hlaupmúffur?

Já nú hleyp ég eins og vindurinn þvers og kruss um Seljahverfið W00t Sótti mér áætlun inn á hlaup.is og er komin í 3 mínútur hlaup vs 3 mínútur ganga x5. Ansi hreint hressandi, sérstaklega undanfarna daga í "blíðviðrinu".

Datt í hug að sýna ykkur mynd af skólalóð Seljaskóla sem er vægast sagt ekki boðleg börnum en nýlega las ég í einhverju blaðinu lista yfir þá skóla sem fá fjárveitingu til að lagfæra lóðina sína. Mér til undrunar var Seljaskóli ekki á þeim lista. I wonder why?

 

IMG_2576

Annars er skvísan að fara að byrja í jazzballett Tounge Hef aldrei stigið inn í danstíma þannig að það verður eflaust mjög fyndin reynsla, ekki eingöngu fyrir mig heldur samdansara mína LoL Hlakka frekar mikið til og mæti að sjálfsögðu í legghlífum Smile

Las stórkostlega skemmtilega auglýsingu í Fréttablaðinu í dag:  "Gefðu konunni frí og prófaðu hina einstöku múffu sem allir eru að tala um." LOL :) Til að útskýra þetta betur þá er verið að auglýsa kynlífshjálpartæki fyrir karlmenn Grin Ég meina gott og vel, bara sanngjarnt að þeir geti líka keypt sér græju en "Gefðu konunni frí!" Grin Mér finnst þetta dásamlegt viðhorf til samskipta kynjanna og spurning hvort kona eða maður skrifi svona? Happy Eins er með nafnið. Hver finnur upp "Múffa" fyrir kynlífshjálpartæki? Sexy mothermúffa Grin Svo fór ég inn á síðuna til að líta Múffuna augum og ég er að segja ykkur satt að ég er grátandi úr hlátri GrinGrin Bls. 7 í Fréttablaðinu í dag góðir hálsar, er farin út að hlaupa Tounge

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vonandi smitast ég af þessari hlaupbakteríu sem virðist landlæg í Seljahverfinu.... hlaup.is kíki þangað og á bls 7 í Fréttablaðinu hehe kv. Ásta

ásta (IP-tala skráð) 19.9.2008 kl. 21:53

2 Smámynd: Hrund Traustadóttir

Já, og ég hvet þig síðan til að kíkja inn á síðuna þar sem eru mjög grafískar myndir af "Múffunum sem allir eru að tala um"  og, nota bene video clip þar sem eru víst nánari leiðbeiningar

Hrund Traustadóttir, 19.9.2008 kl. 22:25

3 Smámynd: Helga Sigríður Úlfarsdóttir

ojojojojoj langar ekki að kíkja á múffuna - neibb - sé fyrir mér svona risastórar "Kamellips" jakkittttt...........

En þú dugleg að vera farin að hlaupa - kannski hleyp ég á þig í hverfinu einn daginn - annars fer ég orðið svo hægt yfir að það er nú lítil hætta á samstuði "these days"  Koma svo bara .............

Helga Sigríður Úlfarsdóttir, 20.9.2008 kl. 00:14

4 Smámynd: Hulda Dagmar Magnúsdóttir

Sko, fyrir sirka þremur árum prentaði frænka mín einhverja svona áætlun út af hlaup.is og byrjaði að hlaupa. Í dag er hún að pakka niður því á þriðjudaginn er hún skráð til leiks í maraþonhlaup einhversstaðar í Bandaríkjunum. Þannig að þetta virkar !!!!

Hulda Dagmar Magnúsdóttir, 28.9.2008 kl. 12:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

249 dagar til jóla

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband