Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2008

"Þegiði, það er verið að reyna að horfa hérna!"

Á ekki að flykkjast í bíó svo maður geti nú tekið undir með gömlu ABBA slögurunum? Whistling

Ég ætti ekki annað eftir Grin Ef mig grípur óviðjafnanleg löngun til að syngja þegar ég er í bíó þá kemst ég alveg yfir það án þess að æra nærstadda með góli mínu Happy Get vel setið á mér þar til heim er komið. Þar get ég spangólað að vild - strákarnir hlaupa þá bara út Blush Ef ég væri á svona Singalong sýningu er ég ekki viss um að ég gæti notið þess að horfa ef fólkið í kringum mig væri hvert af öðru að sleppa sér og syngjandi hástöfum, hver með sínu nefi GetLost

Whistling "Youu are the dancing queeeen, feel the beat from the tamboriiiiiiine, óóójjjeeeeee"Whistling


mbl.is Ábreiður af Abba-klassík á toppinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Costa Del Reykjavík

Mikið lifandis skelfing var dagurinn í gær frábærCool Fleiri svona ha? Fórum í Indíánagil þar sem var svo heitt að ég dauðöfundaði þær sem höfðu haft vit á því að vera í bikini innan undir, strákarnir vaðandi út í ána og sitjandi undir fossunum. Yndislegt. Munaði engu að einn laxinn synti á þáSmile Varð alla vega uppi fótur og fit við ána þegar fólk kom auga á einn vænan að hafa það notalegt í hylnum þar sem við sátum rétt við á teppi og höfðum það líka notalegtCool Krakkarnir gerðu sig líklega til að elta vininn uppi en þarf víst varla að taka fram að það var óþarfa bjartsýniWink

Ég hef víst ekkert val um hvaða útlit ég hef á síðunni minni, alla vega get ég ekki haft mitt upprunalegaWoundering 

Nú styttist í mestu ferðahelgi ársins og við ætlum að halda okkur heima í félagsskap góðra vinaHappy  Er svo fegin að þurfa ekki að vera með áhyggjur af únglíngnum heldur. Það er kannski líka af því dregið hefur úr útihátíðarbransanum sem betur fer.

En þið hin, gangið hægt um gleðinnar dyr og keyrið varlegaPolice


Heiðardal(sel)urinn

Þá er maður kominn heim í kuldann og vosbúðinaSmile En alltaf gott að koma heim samt. Auðvitað bónus að Yvonne vinkona er á landinu, það er alla vega ekki verraLoL

Á meðan við vorum úti barst tilkynning frá Reykjavíkurborg um að blokkin okkar fengi viðurkenningu frá borginni fyrir viðhald og snyrtimennskuWink Nema hvað? Ég hélt þeir ætluðu aldrei að fatta þettaCool

Hvað er þetta með auglýsingar í júlí um að nú sé rétti tíminn til að kaupa skólatöskur? Ég vil fá að vera í friði í sumarfríinu mínu með hugleiðingar um haustið og því sem fylgirAngry Þetta er bara sumarfrísáreitniAngry Maður er bara djollíkóla í sumarfríi og svo er því bara sisona slengt framan í mann að það styttist nú í að skólarnir byrji. EN ÞAÐ ER ENNÞÁ JÚLÍ OG ÉG ER Í SUMARFRÍI!Angry Látið mig í friði með svona auglýsingar og leyfið mér að halda það í friði að það sé ekki bara rétt tæpur mánuður þar til fjörið byrjarCrying 

Nú er mín búin að fá sér Tarot spil þannig að áhugasamir um lestur eru hvattir til að hafa sambandWizard Ég ábyrgist þó ekki útkomuna því ég kann ekkert á þetta whatsoeverTounge En gaman að pæla í þessu...

Ég vildi að ég væri eins og Helga vinkona að tala hér um það hvað ég er dugleg að hlaupa. Ég er nefnilega ekki dugleg að hreyfa mig punktur en voða dugleg að tala um það hvað ég vildi vera duglegBlush Verð bara að fara að gera e-ð í þessu greinilega svo ég geti farið að státa mig af dugnaðinum og kannski misst e-ð af kílóum í leiðinniGrin Helga mín, passaðu þig bara. Fyrr en varði verð ég farin að mása ofan í hálsmálið á þér á hlaupunumTounge

Erla tengda-amma á afmæli í dagWhistling 82 ára, geri aðrir beturSmile


Sól sól skín á mig

Vedurstofan á Spáni spáir sól og meiri sól Cool Sunnanátt og 30+ st hiti og thurrt bjartvidri um allt land Cool Hér er talsverdur vindur í dag sem okkur finnst voda notalegt. Trúum ekki ad lidin sé vika sídan vid komum hingad, vid vaerum engan veginn tilbúin til ad fara heim eftir viku. Vid Andri skruppum til Afríku á mánudaginn og var tad lífsreynsla sem hvorugt okkar gleymir seint. Tetta var eins og ad stíga inn í adra veröld med magadansmeyjum og fólki ad flytja byrdar á asnakerrum.

Í dag er stefnan tekin á Mijas sem er thorp í fjöllunum hér fyrir ofan. Fram ad thví er og verdur legid vid sundlaugarbakkann med Sangria í annarri Cool 

Lifid heilSmile


mbl.is Fremur þungbúið á landinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

248 dagar til jóla

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband