Leita í fréttum mbl.is

Vorið er komið og grundirnar gróa :)

Fyrir þá sem ekki hafa nú þegar séð hana Susan Boyle syngja fyrir Simon Cowell og þau hin þá er linkur hér:

http://www.youtube.com/watch?v=luRmM1J1sfg&feature=bz303

Þegar maður fer í sparikjólinn þá límir maður ekki einhvern flennistóran forljótan númeramiða á hann. Maður límir hann frekar á bringuna á sér Grin Piers búinn að bjóða henni út að borða og er til þjónustu reiðubúinn til að veita Susan sinn fyrsta koss, tæplega 48 ára gamalli. Oprah búin að bjóða henni í sinn þátt en Susan er ekkert að flýta sér og hefur enn ekki þekkst boðið. Það verður gaman að fylgjast með framvindu mála hjá þessari konu svo mikið er víst Smile

Nú er vor í lofti og kosningar framundan. Skyldi fólk eiga auðvelt með að gera upp hug sinn hvar skal krota á seðilinn næsta laugardag? Ég á afskaplega erfitt með að sjá hvaða flokkur ætti mitt atkvæði skilið. Í mínum huga er þetta allt sama súpan. Í versta falli skila ég auðu og hef satt að segja aldrei verið eins nálægt því að komast að þeirri niðurstöðu eins og núna.

Nú er liðinn rúmur mánuður frá því synir mínir tveir hættu að mæta í fimleikana. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir af hálfu okkar foreldrana til að fá Gerplu til að koma til móts við þeirra þarfir hefur ekkert verið gert. Svörin hafa verið á þá leið að jú, ég er einmitt að fara að vinna í þessu máli, hef samband fljótlega..... Einstaklingurinn virðist ekki hafa neitt gildi hjá félaginu, nema að hann sé mögulega líklegur til afreka. Við erum frekar svekkt yfir þessu því auðvitað viljum við að börnin okkar stundi íþróttir, leiðinlegt að þurfa að láta þá hætta við svona kringumstæður. Svo við tölum ekki einu sinni um hið himinháa gjald sem við höfum greitt fyrir vorönnina...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

243 dagar til jóla

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband