Leita í fréttum mbl.is

Jól í skugga kreppu

missing[1]

Í fyrstu vikunni í desember verða tvennir jólatónleikar Kvennakórs Reykjavíkur. Það er því dágóður tími síðan maður fór að raula jólalög Whistling Sem er gott. Held að ég taki líka jólaljósin fyrr fram í ár en venjulega. Aðeins að mýkja stemninguna. Mér og strákunum mínum verður þessa dagana alltaf starsýnt á einn gluggann í götunni hjá okkur. Um síðustu helgi fékk einhver skreytingabrjálæðingurinn þvílíka útrás á þessum glugga. Það er ekki pláss fyrir frímerki á honum fyrir seríum sem allar blikka í öllum regnbogans litum. Það er auðvitað hægt að missa sig í öllu. Þessi hefur alla vega ákveðið að styrkja Orkuveituna þessi jólin. Aldrei að vita nema hún líði skort eins og aðrar stofnanir sosem.

Hvernig ætli jólin verði í ár? Skyldi fólk halda jól eins og það hefur gert undanfarin ár? Ætli maður eigi eftir að upplifa brjálæðið sem einkennt hefur verslunarmiðstöðvar borgarinnar síðustu daga fyrir hátíðar? Veit ekki. Jólin á mínu heimili verða ekki þau sömu. Það er ekkert annað að gera en að halda fast í veskið þessa dagana. Maður veit ekkert hvar eða hvenær þetta ástand endar hér á stórasta landi í heimi.

Birkir situr um okkur pabba sinn þessa dagana og les upp úr Nýja testamentinu fyrir okkur. Kannski viðeigandi miðað við allt og allt?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

nei ætli það.  Gæti trúað að það yrði nú allt annar bragur á.

Ég reikna m.a.s varla með að splæsa í jólakort, kannski maður láti email nægja nema til útvaldra.

en þið komið nú til okkar á 2. í jólum. 

Birkir getur þá lesið jólaguðspjallið

Didda (IP-tala skráð) 13.11.2008 kl. 23:34

2 Smámynd: Helga Sigríður Úlfarsdóttir

Indæll alltaf hann Birkir - hugsar um fjölskylduna sína þessa dagana les ég..........  

Já ég er búin að skreyta eldhúsgluggana og það við mikinn fögnuð einhverfs drengs í nálægu húsi sem horfir á þau heillaður úr sínum glugga  Gott að einhver gleðst þessi dægrin

Helga Sigríður Úlfarsdóttir, 18.11.2008 kl. 21:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

252 dagar til jóla

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 16966

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband